MMR kannaði hvort Íslendingar ætluðu að ferðast innanlands eða utan í sumarfríinu. Litlar breytingar Reyndust á ferðaætlunum Íslendinga frá því árið áður. Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðust 52,8% eingöngu ætla að ferðast á Íslandi í sumarfríinu nú borið saman við 51,9% í júní 2011.
Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðust 27,3% ætla að ferðast bæði innan- og utanlands í sumarfríinu borið saman við 28,5% í júní 2011, 7,9% sögðust eingöngu ætla að ferðast utanlands borið saman við 9,9% í júní 2011 og 11,9% sögðust ekki ætla að ferðast neitt í sumarfríinu borið saman við 9,7% í júní 2011.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 877 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 13.-19. júní 2012
Eldri kannanir sama efnis:
2011 Júní Könnun MMR á ferðahögum íslendinga í sumarfrínu
Niðurstöðurnar á PDF:
1206_tilkynning_sumarfrí.pdf
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.