Jólahefðir Matarvenjur

|

MMR kannaði hvort fólk ætlaði að borða skötu á Þorláksmessu þessi jólin. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 41,8% ætla að borða skötu en meirihlutinn eða 58,2% ætlaði ekki að borða skötu á Þorláksmessu.

 

1112_skata_1

Nokkur munur milli hópa hvort fólk ætlaði að borða skötu eða ekki

Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á því hvort fólk ætlaði að borða skötu á Þorláksmessu eftir kyni og búsetu en þó sérstaklega eftir aldri. Af þeim sem tóku afstöðu ætluðu fleiri karlar en konur að borða skötu á Þorláksmessu eða 46,6% karla borið saman við 37,0% kvenna. Höfuðborgarbúar voru minna hrifnir af skötuáti á Þorláksmessu en þeir sem bjuggu á landsbyggðinni. Þannig sögðust 37,2% höfuðborgarbúa ætla að borða skötu á Þorláksmessu borið saman við 49,0% þeirra sem bjuggu á landsbyggðinni. Mesti munurinn var þó milli aldurshópa og þeim fjölgaði sem ætluðu að borða skötu á Þorláksmessu með hækkandi aldri. Meirihluti elsta aldurshópsins ætlaði að borða skötu eða 55,5% þeirra borið saman við 43,8% aldurshópsins milli 30 – 49 ára og 24,3% yngsta aldurshópsins.

 

1112_skata_2

 

Niðurstöðurnar í heild:
1112_tilkynning_skata.pdf