MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort það teldi að bygging nýs hátæknisjúkrahúss væri góð ráðstöfun á skattfé eða ekki. Af þeim sem tóku afstöðu taldi rúmur helmingur að svo væri ekki eða 51,1%.
Afstaða nokkuð breytileg eftir hópum
Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á afstöðu fólks til þess hvort bygging nýs hátæknisjúkrahúss væri góð ráðstöfun á skattfé eftir hópum. Af þeim sem tóku afstöðu voru konur jákvæðari gagnvart ráðstövun skattfjár til byggingar nýs hátæknisjúkrahúss en karlar en 52,2% kvenna töldu byggingu nýs hátæknisjúkrahúss vera góða ráðstöfun á skattfé borið saman við 45,9% karla. Yngra fólk var einnig jákvæðara gagnvart því að bygging nýs hátæknisjúkrahúss væri góð ráðstöfun á skattfé en 60,9% yngsta hópsins taldi svo vera borið saman við 43,3% elsta aldurhópsins. Höfuðborgarbúar töldu frekar en fólk á landsbyggðinni að bygging nýs hátæknisjúkrahúss væri góð ráðstöfun á skattfé, eða 52,6% höfuðborgarbúa samanborið við 43,3% fólks á landsbyggðinni. Ef litið var til stuðnings við stjórnmálaflokka kom í ljós að stuðningsfólk stjórnarflokkanna taldi frekar að bygging nýs hátæknisjúkrahúss væri góð ráðstöfun á skattfé eða 58,5% stuðningsfólks Vinstri grænna og 57,2% Samfylkingarfólks borið saman við 45,2% stuðningsfólks Framsóknarflokksins og 44,4% Sjálfstæðismanna.
Niðurstöðurnar í heild: 1109_tilkynning_skattfe.pdf