rullettaMMR kannaði hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að leyfa rekstur spilavíta á Íslandi. Af þeim sem tóku afstöðu voru 69,3% sem sögðust frekar eða mjög andvíg hugmyndinni. Skipt eftir einstökum svörum voru 47,5% sem sögðust mjög andvíg, 21,8% sögðust frekar andvíg, 19,8% sögðust frekar fylgjandi og 10,9% sögðust mjög fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á Íslandi. Samkvæmt könnuninni fer því heldur fækkandi í hópi þeirra sem eru fylgjandi rekstri spilavíta á Íslandi en í könnun MMR frá í febrúar 2010 kom fram að 36,3% sögðust frekar eða mjög fylgjandi rekstri þeirra samanborið við 30,7% nú.

Sem fyrr reyndist töluverður munur á afstöðu svarenda eftir kyni og aldri. Þannig voru 44% karla sem sögðust hlynntir því að rekstur spilavíta væri leyfður en eingöngu 16% kvenna. Þá reyndust 51% svarenda undir þrítugu fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á meðan þetta sama hlutfall var 30% hjá aldurshópnum 30-49 ára og eingöngu 14% meðal 50 ára og eldri. Sé fjöldi karla undir þrítugu skoðaður sérstaklega kemur í ljós að 70% svarenda í þessu hópi sögðust fylgjandi því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi.

1107_spilaviti_01

 

 

1107_spilaviti_02

Niðurstöðurnar í heild:
1107_tilkynning_spil.pdf