Niðurstöður kannana MMR í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave þann 9. apríl síðastliðinn reyndust mjög nærri úrslitum kosninganna. Þannig voru niðurstöður beggja kannana MMR sem birtust í vikunni fyrir kosningarnar innan vikmarka frá niðurstöðum kosninganna. Kannanir MMR voru jafnframt þær fyrstu sem sýndu fram á meirihlutastuðning við "nei" atkvæði.
Helstu frávik í samanburði síðustu könnunar MMR fyrir kosningarnar og kosningaúrslitanna sjálfra voru þau að fjöldi þeirra sem kusu "nei" var 2,5 prósentustigum meiri en spáð var (en vikmörk könnunarinnar voru +/-3,6%).
Tölulegur samanburður á niðurstöðum kosninganna og kannana MMR: 1104_Icesave_X_uppgjor.pdf
Samanburð niðurstaðna kannana MMR við aðrar kosningar má sjá hér:
Samanburður úr kosningum til borgarstjórnar 2010