MMR kannaði traust almennings til helstu stofnana á sviði réttarfars og dómsmála. Af þeim stofnunum sem spurt var um nýtur Landhelgisgæslan (80,8%), Sérstakur saksóknari (59,8%) og Ríkislögreglustjóri (55,1%) mest traust meðal almennings. Helstu breytingarnar frá fyrri könnun eru þær að talsvert fleiri bera lítið traust til Hæstaréttar eða 34,7%, miðað við 29,1% í október 2010.
Einnig eru marktækt fleiri sem bera lítið traust til Fangelsismálastofnunar, fer úr 17,5% í október 2010 í 22,1% í dag. Þá fer traust til Sérstaks saksóknara vaxandi en 59,8% svarenda ber mikið traust til hans í dag samanborið við 54,8% í október 2010 og 52,8% í október 2009. Þá fjölgar í hópi þeirra sem segjast bera mikið traust til Dómsmálaráðaneytisins, fer úr 24,5% í október 2010 í 30,2% í febrúar 2011.
Héraðsdómstólarnir njóta trausts 39,3% svarenda og 38,4% sögðust bera mikið traust til ríkissaksóknara. Þá sögðust 33,6% bera mikið traust til dómskerfisins í heild og 22,2% kváðust bera mikið traust til Útlendingastofnunar.
Spurt var: Hversu mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila.
Svarmöguleikar voru: Mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara.
Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust. Samtals tóku 93,3% afstöðu til spurningarinnar.
Niðurstöðurnar í heild: 1102_tilkynning_traustdoms.pdf