MMR kannaði afstöðu almennings til þess hvaða stjórnmálaflokk, sem nú á sitjandi þingmenn á Alþingi, það vildi síst hafa í ríkisstjórn. Af þeim sem tóku afstöðu voru 37,9% sem sögðu að þeir vildu síst hafa Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn, 27,0% tilgreindu Vinstrihreyfinguna-grænt framboð, 19,7% nefndu Samfylkinguna, 7,8% nefndu á Framsóknarflokkinn og 7,5% sögðu að þeir vildu síst hafa Hreyfinguna í ríkisstjórn.
Umtalsverður munur var á afstöðu svarenda eftir stuðningi við stjórnmálaflokka (ef gengið væri til Alþingiskosninga nú). Þannig var áberandi að 84% stuðningsfólks Vinstri-grænna og 73% stuðningsfólks Samfylkingarinnar vildu síst hafa Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn. Þá voru 15% stuðningsmanna Framsóknarflokks og 38% stuðningsmanna Hreyfingarinnar sem vildu síst hafa Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn. Stuðningsfólk Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks voru aftur á móti þeir svarendur sem voru líklegastir til að nefna Samfylkingu eða Vinstri-græna sem þá flokka sem það vildi síst hafa í ríkisstjórn. Þannig nefndu 35% framsóknarfólks og 41% sjálfstæðisfólks Samfylkinguna sem þann flokk sem það vildi síst hafa í ríkisstjórn en 42% framsóknarfólks og 47% sjálfstæðisfólks nefndu Vinstri-græna sem þann flokk sem það vildi síst hafa í ríkisstjórn.
Ef horft er til þeirra sem segjast myndu vilja kjósa aðra flokka en þá sem nú sitja á Alþingi, þá sem segjast myndu skila auðu og þá sem hafa ekki tekið afstöðu til þess hvað þeir myndu kjósa ef kosið væri nú má sjá líkt mynstur milli allra þessara hópa. Á bilinu 41% til 50% vilja síst hafa Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn, 23%-26% vilja síst hafa Vinstri-græna í ríkisstjórn og undir 20% vilja síst hafa Samfylkinguna í ríkisstjórn.
Niðurstöðurnar í heild: 1011_tilkynning_ekkiflokk.pdf