Meirihluti svarenda eða 70,3% telja að boðskapur mótmæla- og borgarafunda undanfarinna vikna endurspegli viðhorf meirihluta þjóðarinnar, sem er aðeins hærra hlutfall en var í könnun MMR frá desember 2008 þegar 66,2% voru á þeirri skoðun. Líkt og þá er mikill munur á afstöðu fólks til fundanna eftir stuðningi við stjórnmálaflokka og ríkisstjórnina.

Í desember 2008 töldu 11,4% þeirra sem sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn að fundirnir endurspegluðu viðhorf meirihluta þjóðarinnar borið saman við 65,4% í könnuninni núna sem er rúmlega fimmföldun. Þeim fækkar aftur á móti töluvert, meðal þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri-græna, sem telja að mótmælin endurspegli viðhorf meirihluta þjóðarinnar. Nú eru 58,4% stuðningsmanna Vinstri-grænna á þeirri skoðun en voru 90,9% í desember 2008.

Niðurstöðurnar í heild:
1007_tilkynning_motmaeli.pdf