Alþingiskosningar

|

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,9%, rúmu prósentustigi hærra en í síðustu fylgismælingu MMR sem lögð var fyrir dagana 21. - 22. september. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 16,4%, rúmum tveimur prósentustigum meira en í síðustu mælingu og fylgi Viðreisnar jókst um tvö prósentustig og mældist nú 12,0%. Fylgi Samfylkingarinnar minnkaði um rúm tvö prósentustig og mældist nú 11,5%, Fylgi Vinstri-grænna minnkaði um rúmt prósentustig og mældist nú 9,7% og fylgi Flokks fólksins minnkaði um rúmt prósentustig og mældist nú 6,2%. Þá jókst fylgi Miðflokksins um eitt prósentustig og mældist nú 5,8% en fylgi Sósíalistaflokks Íslands minnkaði um tæpt prósentustig og mældist 5,1%. Fylgi annarra flokka mældist nær óbreytt frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 51,6%, nær óbreytt frá síðustu könnun þar sem stuðningur mældist 51,7%.

Nánari umfjöllun um niðurstöður fylgismælingarinnar má finna á vef Morgunblaðsins:
https://www.mbl.is/frettir/kosning/2021/09/24/rikisstjornin_gaeti_haldid/

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,9% og mældist 21,8% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 16,4% og mældist 14,3% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 12,0% og mældist 10,1% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 11,5% og mældist 13,9% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 9,9% og mældist 10,3% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 9,7% og mældist 11,0% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,2% og mældist 7,3% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 5,8% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,1% og mældist 6,0% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 0,6% samanlagt.

Fylgi

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 89,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (2,3%), myndu skila auðu (3,5%), myndu ekki kjósa (1,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Þróun yfir tíma

Þróun yfir tíma

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur


Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1.229 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 22. til 23. september 2021