MMR kannaði á tímabilinu 20. júní til 1. júlí 2014 viðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til horfa í íslensku hagkerfi sem og mikilvægra þátta í rekstarumhverfi þeirra eigin fyrirtækja til næstu 12 mánaða.
Stjórnendur voru bjarstýnni á horfur íslensks hagkerfis til næstu tólf mánaða en þeir voru í desember 2013. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 81,1% stjórnenda telja að íslenska hagkerfið muni vaxa á næstu tólf mánuðum, borið saman við 58,9% í desember 2013.
Spurt var: „Hverjar telur þú horfur íslensks hagkerfis vera til næstu 12 mánaða?“
Svarmöguleikar voru: Hagkerfið mun dragast mikið saman, hagkerfið mun dragast lítillega saman, stærð hagkerfisins mun standa í stað, hagkerfið mun vaxa lítillega, hagkerfið mun vaxa mikið, veit ekki og vil ekki svara.
Samtals tóku 96,2% afstöðu til spurningarinnar.
Fleiri stjórnendur eiga von á að velta, arðsemi og eftirspurn eftir vöru/þjónustu aukist.
Niðurstöðurnar sýna að fleiri stjórnendur eiga von á að velta, arðsemi og eftirspurn eftir vöru/þjónustu aukist á næstu 12 mánuðum en í síðustu mælingu (desember 2013). Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 66,8% telja að velta muni aukast hjá sínu fyrirtæki á næstu 12 mánuðum, borið saman við 60,7% í desember 2013, 65,5% sögðust telja að eftirspurn eftir vöru/þjónustu fyrirtækisins myndi aukast á næstu 12 mánuðum, borið saman við 55,0% í desember 2013 og 52,3% sögðust telja að arðsemi fyrirtækisins myndi aukast á næstu 12 mánuðum, borið saman við 43,7% í desember 2013.
Spurt var sex spurninga: Hvernig telur þú að þróun eftirtalinna atriða verði hjá fyrirtæki þínu næstu 12 mánuði í samanburði við síðustu 12 mánuði?: Velta, arðsemi, eftirspurn eftir vöru/þjónustu, samkeppnishæfni, markaðsstarf og fjöldi starfsmanna.
Svarmöguleikar voru: Minnki mikið, minnki eitthvað, óbreytt, aukist eitthvað, aukist mikið, veit ekki og vil ekki svara. Á myndinni má sjá hlutfall þeirra sem svaraði hverri spurningu með aukist eitthvað eða aukist mikið. Spurðir voru 728 einstaklingar og var afstaða til spurninganna á bilinu 97,1% til 98,2%.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Stjórnendur í fyrirtækjum á Íslandi (forstjórar, framkvæmda-, fjármála- og markaðsstjórar)
Könnunaraðferð: Netkönnun
Svarfjöldi: 728 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 20. júní til 1. júlí 2014
Eldri kannanir sama efnis:
Desember 2013: MMR stjórnendakönnun
Júlí 2013: MMR stjórnendakönnun
Apríl 2011: MMR stjórnendakönnun