Stjórnmál Traust

|

MMR traustMMR kannaði á dögunum traust til helstu stofnana samfélagsins.
Flestir sögðust bera mikið traust til Lögreglunnar, Háskóla Íslands, Ríkisútvarpsins og Háskólans í Reykjavík. Fæstir sögðust bera mikið traust til Bankakerfisins, Fjármálaeftirlitsins, fjölmiðla og Lífeyrissjóðanna.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 77,1% bera mikið traust til Lögreglunnar, 61,3% til Háskóla Íslands, 52,3% til Ríkisútvarpsins og 48,6% til Háskólans í Reykjavík. Til samanburðar sögðust 9,2% bera mikið traust til bankakerfisins, 10,2% til fjármálaeftirlitsins, 12,7% til fjölmiðla og 12,9% til Lífeyrissjóðanna.

  1310 trust stofn 01Spurt var: Hversu mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila.
Svarmöguleikar voru: Mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara.
Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust.
Samtals tóku 97,3% afstöðu til spurningarinnar (einhverrar stofnunar). Hlutfallstölur eru reiknaðar af heildarfjölda þeirra sem tóku afstöðu til einhverrar stofnunar.

  

Þróun milli mælinga*:
*ekki eru til mælingar á öllum stofnunum í öll skiptin

Traust til Háskóla Íslands og Reykjavíkur hefur dregist nokkuð saman frá því í júní 2012. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 61,3% bera mikið traust til Háskóla Íslands, borið saman við 69,8% í júní 2012. 48,6% sögðust bera mikið traust til Háskólans í Reykjavík nú, borið saman við 54,5% í júní 2012.

Traust til Alþingis hefur aukist nokkuð frá síðustu mælingu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 16,4% bera mikið traus til Alþingis nú, borið saman við 7,9% í júní 2012. Sömuleiðis hefur traust til Ríkisstjórnar og Stjórnarandstöðu aukist frá síðustu mælingum. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 23,0% bera mikið traust til ríkisstjórnarinnar, borið saman við 15,8% í júní 2012. 22,5% sögðust bera mikið traust til Stjórnarandstöðunnar nú, borið saman við 14,9 í júní 2012.

Traust til Seðlabankans, Fjármálaeftirlitsins og Bankakerfisins hefur ekki mælst hærra frá því að mælingar hófust í desember 2008.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 20,0% bera mikið traust til seðlabankans nú, borið saman við 14,6% í júní 2012 og 9,8% í desember 2008.
10,2% sögðust bera mikið traust til Fjármálaeftirlitsins nú, borið saman við 9,2% í júní 2012 og 5,0% í desember 2008.
9,2% sögðust bera mikið traust til Bankakerfisins nú, borið saman við 6,1% í júní 2012 og 5,0% í desember 2008.

Þróun allra stofnana má sjá í meðfylgjandi gröfum.

 

 

1310 trust stofn 02 

 

1310 trust stofn 03

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 937 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 10. til 15. október 2013

Eldri kannanir sama efnis:
2012 júní: MMR Könnun á trausti almennings til helstu stofnana samfélagsins
2011 október: MMR Könnun á trausti almennings til helstu stofnana samfélagsins
2010 október: MMR Könnun á trausti almennings til helstu stofnana samfélagsins
2010 maí: MMR Könnun á trausti almennings til helstu stofnana samfélagsins
2009 október: MMR Könnun á trausti almennings til helstu stofnana samfélagsins
2009 maí: MMR Könnun á trausti almennings til helstu stofnana samfélagsins
2008 desember: MMR Könnun á trausti almennings til helstu stofnana samfélagsins